Tannlæknar okkar

Bjarni Elvar Pjetursson
Dr. / Sérfræðingur
Dr. Bjarni Elvar Pjétursson lauk prófi frá Tannlæknadeild Háskóla Íslands árið 1990. Bjarni starfaði í fimm ár á eigin tannlæknastofu á Egilsstöðum og hóf störf á Tannlæknastofunni Valhöll árið 1995. Árin 2000 til 2005 stundaði Bjarni framhaldsnám í tannholdslækningum og tannplantafræðum sem og munn- og tanngervalækningum við Háskólann í Bern í Sviss.

Kristín Heimisdóttir
Tannréttingasérfræðingur
Kristín lauk kandídatsprófi í tannlækningum frá tannlæknadeild HÍ árið 1995 og öðlaðist sama ár tannlækningaleyfi. Lauk sérnámi í tannréttingum frá tannlæknadeild háskólans í Bern, Sviss árið 2003 og starfaði sem aðstoðarprófessor við þá deild til ársins 2006. Tók sumarnámskeið við University of Washington, Seattle, “Summer Institute for Dental Research” sumarið 2006. Frá árinu 2006 hefur Kristín starfað að tannréttingum á eigin stofu í Valhöll. Hún varadeildarforseti tannlæknadeildar og fagstjori tannréttinga auk þess sem hún er dósent við HÍ.

Magnús Jón Björnsson
Dr. / Sérfræðingur í tannholdslækningum
Dr. Magnús Björnsson lauk prófi frá Tannlæknadeild Háskóla Íslands árið 1992 og hóf störf á tannlæknastofunni Valhöll árið 1995. Magnús stundaði rannsóknir við tannlæknadeild Karolinska Institut í Stokkhólmi 1995-1996 en lauk svo doktorsnámi í tannholdsfræðum frá tannlæknadeild Kaupmannahafnarháskóla árið 2001.

Gunnlaugur Þór Guðmundsson
Tannlæknir
Gunnlaugur Þór Guðmundsson lauk prófi frá tannlæknadeild HÍ árið 2000. Gunnlaugur hefur starfað á Tannlæknastofunni Valhöll frá útskrift. Gunnlaugur er stundakennari í preklíniskum munn- og tanngervalækningum við Tannlæknadeild HÍ.

Ásta Óskarsdóttir
Tannlæknir
Ásta Óskarsdóttir lauk prófi frá Tannlæknadeild Háskóla Íslands árið 2001. Hún hefur starfað síðan í Kópavogi, á Englandi, á Akureyri og síðan árið 2012 í Valhöll. Ásta er einnig menntaður dáleiðslutæknir og notar gjarnan þá tækni hjá sjúklingum með tannlæknahræðslu.

Helga Helgadóttir
Tannlæknir
Helga Helgadóttir útskrifaðist frá Tannlæknadeild Háskóla Íslands 2011 og hefur starfað sem tannlæknir á höfuðborgarsvæðinu frá útskrift. Hún hóf störf á Tannlæknastofunni Valhöll 2022 og sinnir öllum almennum tannlækningum ásamt stundakennslu við Háskóla Íslands.

Gréta Rut Bjarnasóttir
Tannlæknir
Gréta Rut Bjarnadóttir útskrifaðist árið 2021 frá tannlæknadeild HÍ og hóf störf hjá tannlæknastofunni Valhöll sama ár. Samhliða vinnu stundar hún meistaranám í tannlækningum og hefur leyfi á Clear Correct tannréttingaskinnukerfið. Gréta Rut talar íslensku, ensku og þýsku.

Lára Gunnlaugsdóttir
Lára Gunnlaugsdóttir lauk prófi frá tannlæknadeild HÍ árið 2025 og hefur starfað hjá Tannlæknastofunni Valhöll síðan.

Ragnheiður Karlsdóttir
Ragnheiður Karlsdóttir lauk prófi frá tannlæknadeild HÍ árið 2026 og hóf strax störf hjá tannlæknastofunni Valhöll